9 Júlí 2005 12:00

Kl.18:22 í dag fékk lögreglan á Ísafirði tilkynningu frá Neyðarlínunni um að lítilli skútu hafi hvolft í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi. Einn maður var um borð og var óttast um afdrif hans.  Samferðafólk hans hafði verið að fylgjast með manninum, sem var einsamall á skútunni, sigla á miðjum firðinum, en skyndilega mun hann hafa horfið sjónum þeirra.  Samferðamenn sjósettu lítinn bát á fjörðinn, auk þess sem hringt var í Neyðarlínuna.

Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson var sendur á vettvang, auk slöngubáts Björgunarfélags Ísafjarðar.  Þá var beðið um aðstoð björgunarmbátsins Gísla Hjalta í Bolungarvík.

Kl.18:50 hafði samferðamönnum skipbrotsmannsins tekist að ná honum um borð í lítinn bát. Ekkert amaði að manninum, sem reyndist vera vel búinn.  Björgunarbátum og öðru björgunarliði er stefnt hafði verið á vettvang var snúið við. 

Töluverður vindur hefur verið í Skötufirði í dag og sjór úfinn.