11 Júní 2012 12:00

Ráðist var á stúlku í Reykjanesbæ aðfararnótt sunnudags og hún slegin í andlit og höfuð með háum skóhæl. Að því er næst verður komist hafði hún átt orðaskipti við stúlku og mann sem hún þekkti ekki  áður en hún varð fyrir árásinni. Stúlkan var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem hún fékk aðhlynningu. Henni var leyft að fara heim að því búnu.

Landi og bjór í yfirgefinni bifreið

Skutbifreið var ekið út af á Reykjanesbraut, austan við Vogaafleggjara í gær. Þegar lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang var ökumaður á bak og burt, en á gólfi bifreiðarinnar fundust tvær lítersflöskur af landa og á annan tug bjórdósa. Lögregla hafði samband við eiganda bílsins sem kvaðst hafa lánað hann vini kunningja síns en kom að öðru leyti af fjöllum hvað útafaksturinn varðaði. Bíllinn er óökufær eftir útafaksturinn enda hafnaði hann á stórgrýttum mel.  Hjólabúnaður laskaðist og loftpúðar sprungu út.  Til stendur að  fjarlægja bílinn í dag.