26 Júlí 2007 12:00

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar og áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar unnu þrekvirki í nótt þegar 24 ára gömlum manni var bjargað upp úr Laxárgljúfri eftir að hann féll þar niður en hann var á ferð við gljúfrið ásamt tveimur félögum sínum. Slysið var tilkynnt lögreglu um kl. 23:30 en þannig hagar til á vettvangi að ekki var unnt að hífa hinn slsaða upp úr gljúfrinu með þyrlunni og sigu björgunarmenn og læknir niður til hans, bjuggu um hann á börum og báru hann síðan að þeim stað þar sem hægt var að hífa börurnar upp í böndum. Þegar upp var komið var hinn slasaði fluttur um borð í þyrluna og með henni á sjúkrahús í Reykjavík og er gert ráð fyrir því að þyrlan lendi með hann þar um kl. 05:00. Ekki er, á þessu stigi, vitað um eðli meiðsla hans en hann er talinn mikið slasaður.