10 Mars 2017 16:58

Kl. 15:59 í dag barst útkall til Neyðarlínu vegna manns sem bjargað hafði verið meðvitundarlausum á land úr Silfru á Þingvöllum.   Lögregla og sjúkralið ásamt þyrlu LHG voru kölluð til.   Maðurinn, sem er erlendur ferðamaður á sjötugsaldri, mun hafa verið að snorkla í gjánni og hafa verið í för með fleiri úr fjölskyldunni í skipulagðri ferð.  Verið er að flytja manninn með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík.