9 Janúar 2007 12:00

Við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar á Seyðisfirði, í morgun, við komu Norrænu, fannst í bifreið talsvert magn af vaxtahormónum og sterum í „ambulum“. Tollgæslan afhenti lögreglu embættisins málið til rannsóknar. Eigandi bifreiðarinnar viðurkenndi að eiga efnin og kvað þau ætluð til eigin nota. „Ambulurnar“ voru faldar í farangri víðsvegar í bifreiðinni. en um er að ræða tæplega 200 stk. sem innihalda vaxtahormón og tæplega 40 stk. sem innihalda stera. Kaupverð var sagt um 500.000 ískr. í Danmörku.  Að loknum yfirheyrslum hjá lögreglu var viðkomandi aðila sleppt sem og samferðakonu hans. Málið telst upplýst.