30 Desember 2010 12:00

Um kl. 10:30 í dag fór Lögreglan á Eskifirði í samvinnu við Tollgæsluna á Eskifirði og yfirhundaþjálfara RLS til leitar um borð í flutningaskipinu El-Bravo sem lá í Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð.  Við leit í skipinu lagði tollgæslan hald á óverulegt magn af vindlingum.  Í tengslum við aðgerðina voru tveir karlmenn handteknir og fór lögreglan í húsleit á heimili þeirra í Fjarðabyggð .  Hald var lagt á nokkur grömm af cannabis, neysluáhöld og cannabisplöntu, ásamt smygluðum vindlingum.  Málin teljast upplýst og hefur mönnunum verið sleppt.