6 Júní 2012 12:00

Lítil meiðsl urðu á fólki en talsverðar skemmdir á tveimur bílum þegar rúmlega tvítugur  ökumaður ók aftan á bifreið á Reykjanesbraut í Hvassahrauni. Ökumaðurinn tjáði lögreglunni á Suðurnesjum að hann hefði sofnað við aksturinn og því hefði farið sem fór. Þegar betur var að gáð reyndist hann vera með útrunnið ökuskírteini. Hann var einn í bifreiðinni en ökumaður og farþegi í bílnum sem hann ók á. Allir þrír fundu til minni háttar eymsla og ætluðu sjálfir að leita til læknis teldu þeir sig þurfa þess.