17 Febrúar 2014 12:00

Árið 2013 bárust skrifstofunni 491 tilkynningar frá tilkynningarskyldum aðilum, sem er enn og aftur fjölgun frá árinu á undan, en þá voru þær 352. Tilkynningum og fyrirspurnum frá lögregluembættum hefur fjölgað talsvert svo og önnur þjónusta við embættin. Peningaþvættisskrifstofu ríkislögreglustjóra bárust alls 491 tilkynningar frá tilkynningarskyldum aðilum á árinu, af þeim voru 254 framsend til þóknanlegrar meðferðar. Samskipti við erlendar peningaþvættisskrifstofur (Egmont Secure Web) voru þó nokkur á árinu.

Eitt af hlutverkum peningaþvættisskrifstofu er að veita fræðslu um peningaþvætti og stóð skrifstofan fyrir þremur kynningum fyrir tilkynningarskylda aðila á árinu.