14 Ágúst 2012 12:00

Tilkynning barst til lögreglunnar á Suðurnesjum rétt eftir miðnætti í nótt þess efnis að farið hefði verið inn í bifreið og stolið úr henni staðsetningartæki, sem fest var í framrúðuna. Á daginn kom að bifreiðin var ólæst því læsingin var biluð. Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að ganga vel og tryggilega frá ökutækjum sínum og skilja ekki eftir í þeim verðmæti.