12 Mars 2010 12:00

Lögreglan á Selfossi handtók um hádegi í gær, fimmtudag, tvo karlmenn í Þorlákshöfn vegna gruns um að þeir hefðu í fórum sínum þýfi.  Eftir nokkra rannsóknarvinnu var ákveðið að gera húsleit í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn sem ekki er búið í og er á forræði íbúðarlánasjóðs.  Í bílskúr hússins var vélsleðakerra full af stórum jeppahjólbörðum.  Bílskúrinn var mikið magn af alls konar verkfærum og  hjólbörðum.  Í kjölfarið voru mennirnir tveir handteknir í húsi í Þorlákshöfn.  Við nánari skoðun kom í ljós að bifreið sem þeir voru með til umráða var með skráningarmerkjum sem hafði verið stolið af sams konar bifreið.  Hald var lagt á hið meinta þýfi.  Mennirnir voru yfirheyrðir í gærkvöldi og aftur í morgun.  Við yfirheyrslu viðurkenndu þeir að hafa stolið hjólbörðunum og verkfærum af höfuðborgarsvæðinu.  Þarna var um að ræða dýr gæðaverkfari.  Ætla má að verðmæti þýfisins, sem hald var lagt á, sé um fjórar milljónir króna.  Hluti þýfisins er komið til skila.  Hjálpaði mikið til að eigandi verkfæranna hafði merkt hvert stykki og var með lista yfir þau öll.  Mennirnir voru látnir lausir um hádegi í dag.  Talsverð vinna hefur verið lögð í  rannsóknina en stefnt er að því að málið verði að mestu upplýst í næstu viku.