18 Desember 2012 12:00

Lögreglan á Selfossi lýsir enn eftir Matthíasi Mána Erlingssyni fd. 15.01.1988 en hann strauk úr afplánun refsingar í fangelsinu að Litla Hrauni  í dag.   Matthías er 171 sm á hæð um 70 kg,  grannvaxinn.  Hann var íklæddur grárri hettupeysu, með svarta prjónahúfu á höfði,  í dökkum buxum.

Vísbendingar eru um að hann hafi fengið far á Selfoss um kl. 13:30 í dag.  Það hefur hinsvegar ekki fengist staðfest og því óskar lögreglan eftir öllum upplýsingum sem tengst geta stroki hans.  Sími lögreglu er 480 1010

Matthías var að afplána refsingu fyrir gróft ofbeldisbrot.

Myndirnar hér að neðan eru af Matthíasi,  á annarri má sjá klæðnað hans á lóð fangelsisins fyrr í dag.