22 Febrúar 2016 12:56

Fingralangur viðskiptavinur sem heimsótti Bónusverslun í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum reyndist vera með litlar frostnar Billys pítsur í rassvörunum þegar afskipti voru höfð af honum. Einnig var hann með þrjá pakka af kjöti sem hann hafði falið innan klæða.

Maðurinn var með körfu í versluninni, sem hann tíndi vörur í og greiddi fyrir þær. Hann lét hins vegar ógert að greiða fyrir pítsurnar og kjötið, að andvirði á fimmta þúsund krónur. Hann viðurkenndi brot sitt .