27 Október 2014 12:00

Landssamband lögreglumanna hefur fært Frosta Jay Freeman og fjölskyldu hans veglegan styrk, en peningarnir koma úr Líknar- og hjálparsjóði Landssambandsins. Lögreglumenn greiða í sjóðinn mánaðarlega, en þeir selja líka merki og kort í fjáröflunarskyni. Sjóðurinn var stofnaður árið 1992 og samtals hafa á annað hundrað aðilar, bæði einstaklingar og ýmiss samtök, notið góðs af og sannarlega hefur styrkur úr sjóðnum komið þeim öllum vel enda aðstæður hjá fólki oft mjög erfiðar.

Frosti, sem er 7 ára, er með sjaldgæfan erfðasjúkadóm sem nefnist Ataxia telangiectasia, en sjúkdómurinn leggst á tauga- og ónæmiskerfið og veldur alvarlegri færniskerðingu. Hægt er fylgjast með baráttu Frosta og fjölskyldu hans á fésbókarsíðunni Áfram Frosti Jay Freeman.

Frosti og Petra, móðir hans, ásamt Gissuri og Dúna frá lögreglunni.