23 Desember 2013 12:00

Versnandi veður er nú á norðanverðum Vestfjörðum.  Vindur hefur aukist og spáð er töluverðri úrkomu í kólnandi veðri.  Í þessum aðstæðum skapast snjóflóðahætta á Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð.  Af þessum sökum mun veginum milli Súðavíkur og Ísafjarðar verða lokað kl.20:00 í kvöld.  Strax í fyrramálið mun staðan verða metin m.t.t. opnunar á nýjan leik. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma Vegagerðarinnar, 1777, eða á heimasíðu hennar, http://www.vegagerdin.is