13 Janúar 2005 12:00

Nokkuð hefur borið á því undanfarið að fólki á Suðurnesjum hafi borist bréf frá Malaga á Spáni með pappírum sem merktir eru La Primitiva Loteria Y Apuestas og fólki tilkynnt að það hafi unnið 18,5 milljónir evra í þessu lóttói. Svikahrappar standa fyrir þessu í þeim tilgangi að láta fólk greiða sér peninga fyrir einhverjum ótilgreindum kostnaði sem fylgir því að fá „stóra vinninginn“ sem svo aldrei kemur. Full ástæða er til að vara almenning við þessum bréfum enda dæmi um að fólk hafi látið glepjast og glatað fé í þessa hrappa.

Þá er ástæða til að vara fólk við tölvupósti þar sem óskað er eftir að fólk hafi milligöngu um notkun bankareikninga sinna til að færa fjármuni, aðallega frá Afríku, gegn hárri þóknun.   Í þessum tilvikum er líka um svikahrappa að ræða og fólk varað við að koma á tengslum við þessa aðila.