14 Desember 2009 12:00

Umferðarráð hvetur alla vegfarendur til að sýna fyllstu árvekni í umferðinni.  Sérstaklega bendir Umferðarráð öllum á að akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er helsta orsök alvarlegra umferðarslysa.  Á aðventunni og um jólin gera margir sér dagamun þar sem áfengi er haft um hönd.  Umferðarráð minnir á að þeir sem neyta áfengis og fíkniefna eru óhæfir til að stjórna ökutæki og að slíkur akstur er dauðans alvara.  Almenningssamgöngur, ganga eða leigubíll kosta minna en mannslífin.

Ályktunin hér að ofan var samþykkt á 230. fundi Umferðarráðs sem haldinn var þann 10. desember sl.