31 Júlí 2011 12:00

Talsvert var að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna skemmtanahalds á Akureyri. Mikill fjöldi fólks var í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi og nótt og þó nokkur ölvun.  Lögreglan þurfti aðallega að hafa afskipti af fólki sem hafði sofnað ölvunarsvefni utandyra víðs vegar um bæinn. Einn gisti fangageymslu lögreglunnar sökum ölvunar.Þau mál sem komu til kasta lögreglu reyndust vera minniháttar.