12 Júní 2012 12:00

Tilkynning barst til  lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrradag þess efnis að maður væri að reyna að komast inn í bíla í Keflavík. Lögreglumenn fundu manninn fljótlega og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann reyndist vera með stera í fljótandi formi í fórum sínum, auk allmikilla peninga. Hann var í annarlegu ástandi og reyndist útilokað að ræða við hann að svo komnu máli. Hann var því látinn  sofa úr sér í fangaklefa, en tekin af honum skýrsla að því loknu og hann látinn laus.