23 Janúar 2007 12:00

Arnar Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn tekur við starfi tengifulltrúa embættis ríkislögreglustjóra hjá Evrópulögreglunni Europol hinn 1. febrúar n.k.  Arnar verður með starfsheitið „Liaison Officer“ og er fyrstur til að gegna því starfi af hálfu íslenskra lögregluyfirvalda. Störf Arnars munu auðvelda öll samskipti lögreglunnar hér á landi við Europol.

Hér á heimsíðunni er hægt að kynna sér starfsemi Evrópulögreglunnar sem hefur höfuðstöðvar í Haag í Hollandi.