3 Desember 2013 12:00

Lögreglumenn á vakt hafa upplýst þjófnað á stórum hjólbörðum sem stolið var frá Bíliðjunni í Þorlákshöfn um miðjan nóvember síðastliðinn.  Verðmæti hjólbarðanna var um hálf milljón króna.  Á eftirlitsmyndavél fyrirtækisins sást til manns á bifreið en ekki sást í skráningarnúmer.  Lögreglumennirnir lögðust í mikla rannsóknarvinnu sem leiddi til þess að málið upplýstist og hjólbarðarnir komnir til eiganda síns.  Sannast hér máltækið „Þeir fiska sem róa“.