23 Október 2010 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreiðinni RF-232, sem er Toyota Yaris árgerð 2007, ljósgrá.  Bifreiðin hvarf frá byggingu 761 við Valhallarbraut að Ásbrú í Reykjanesbæ á tímabilinu 05.-12. október.  Bifreiðin tilheyrir CC bílaleigunni.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðina gæti verið að finna eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.