18 Júní 2003 12:00

Lögreglan í Keflavík hefur til rannsóknar mál er varðar þjófnað á verðmætasendingu á vegum Íslandspósts, en málið var tilkynnt til lögreglu fimmtudaginn 12. júní s.l.

Við rannsókn málsins beindist grunur að starfsmanni Íslandspósts. Við yfirheyrslur hjá lögreglu hefur maðurinn sýnt samstarfsvilja og gengist við brotinu. Þýfið er að mestu komið fram.

Laugardaginn 14. júní s.l. var maðurinn færður fyrir Héraðsdóm Reykjaness. Hann var þá úrskurðaður í gæsluvarðhald til klukkan 16, mánudaginn 16. júní. Maðurinn var aftur færður fyrir Héraðsdóm á mánudegium, þar sem hann gerði frekari grein fyrir brotinu. Hann var þá úrskurðaður í farbann þar til 15. ágúst n.k.

Ekki verður uppgefið hversu miklum verðmætum stolið var, eða um eiganda þeirra.