20 Október 2009 12:00

Lögreglan á Selfossi handtók um hádegi í gær þrjá Litháa í Grímsnesi.  Ástæðan var grunur um aðild að þjófnaði úr ferðamannaversluninni á Geysi fyrir rúmri viku þegar stolið var vörum fyrir um 400 þúsund krónur.  Lögregla fékk ábendingu um að mennirnir hefðu verið staddir á Geysissvæðinu í hádeginu í gær, líklega til að endurtaka leikinn frá því vikunni áður.  Starfsfólk verslunarinnar hafði eftirlit með þeim inni í versluninni.  Mennirnir þrír yfirgáfu búðina án þess að eiga þar viðskipti eða hafa nokkuð með sér.  Eftir handtöku voru mennirnir færðir í fangageymslu á Selfossi.  Í kjölfarið fóru lögrelgumenn frá Selfossi til Reykjavíkur til að leita að fjórða manninum sem grunaður var um aðild að þjófnaðinum í ferðamannaversluninni.  Hann fannst eftir að leitað hafði verið á tíu stöðum í höfuðborginni.  Kona sem talin er eiga hlutdeild í þjófnaðinum var handtekin í Reykjavík í morgun og færð til yfirheyrslu á Selfossi. 

Lögreglumenn á Selfossi hafa í morgun yfirheyrt fólkið.  Fyrir liggur játning í málinu og það upplýst.  Þrír karlanna ásamt konunni stóðu að þjófnaðinum.  Fjórði karlmaðurinn átti engan þátt í brotinu og hafði góða og gilda fjarvistarsönnum þar sem hann dvaldi í fangelsi á þeim tíma sem þjófnaðurinn átti sér stað. 

Fólkið er grunað um að hafa staðið að búðahnupli og þjófnuðum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.  Lögreglustjórinn á Selfossi mun strax í dag gefa út ákæru á hendur fjórmenningunum jafnframt því að tilkynna Útlendingastofu um málið sem mun taka ákvörðun um brottvísun fólksins af landinu.