1 Júní 2012 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í nótt afskipti af rúmlega tvítugum ökumanni vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Hann játaði að hafa notað slík efni um kvöldmatarleytið í gær. Þá voru höfð afskipti af öðrum ökumanni, sem einnig var grunaður um fíkniefnaakstur. Þriðji ökumaðurinn  vakti svo athygli lögreglu, þar sem vitað var að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Lögregla fylgdist með honum, þar sem hann skrapp inn í verslun. Þegar hann kom út aftur þóttist hann ætla að fara inn í bílinn farþegamegin þegar hann sá lögreglubílinn dóla fram hjá. Ekki leið á löngu þar til að hann var kominn í bílstjórasætið og var í þann mund  að aka af stað þegar lögregla stöðvaði hann. Hann reyndist, auk réttindaleysisins, vera vel hífaður undir stýri.