28 Júlí 2012 12:00

Í gær, föstudag, áttu rúm tólf þúsund ökutæki leið um Suðurlandsveg við Ingólfsfjall.  Eins og áður var mest álagið síðdegis.  Umferðin gekk vel og án nokkura óhappa. 

Farið var í þyrlueftirlit um Suðurland í gærkvöldi.  Áhöfn TF GNÁ flaug með lögreglumenn í uppsveitir Árnessýslu austur eftir þjóðvegi 1 inn á Mýrdalssand og þaðan inn á Syðra Fjallabak .  Afskipti voru höfð af sex ökumönnum sem óku of hratt.  Á Fjallabaki sást til tveggja ökutækja en ekki þurfti að hafa afskipti af þeim.  Engin nýleg ummerki voru um  utanvegaakstur á svæðinu.

Embætti lögreglustjórans á Selfossi er afar þakklátt Landhelgisgæslunni og starfsmönnum hennar sem að þessu koma fyrir frábært samstarf sem hefur þróast með þessu verkefni.  Lögreglumenn eru vissir um að  eftirlitið hafi, ásamt öðru, dregið úr utanvegaakstri og vonandi hraðakstri á fáfarnari vegaköflum þar sem ökumenn eiga síður von á að lögreglumenn séu á ferð.  Áhafnir þyrlanna og lögreglumenn nota hvert tækifæri til að stilla saman strengi og ná upp og viðhalda færni við þyrlueftirlitið.