11 Apríl 2009 12:00

Adolf Árnason lögreglumaður á Hvolsvelli í dag á hálendinu.

Þyrlueftirlit í dag gekk vel.    Laugardaginn 11. apríl 2009  

Lögreglan á Hvolsvelli og Landhelgisgæslan á eftirlitferð.

Ökumenn jeppa, snjósleða og annarra farartækja voru látnir gefa öndunarpróf og var enginn undir áhrifum áfengis.  Flogið var um Emstrur,  lent var við skálann í Glaðheimum og rætt þar við nokkra snjósleðamenn.  Þeir voru beðnir um að gefa öndunarpróf og voru þeir allir í lagi.   Síðan var flogið í Landmannalaugar. Fáir voru í Landmannalaugum og allt reyndist þar vera í besta lagi.  Síðan var flogið yfir Eyjafjallajökul.  Mikið var af bifreiðum þar á ferð ca 30-40 jeppar.  Var ákveðið að lenda á Hamragarðaheiði, þar sem að ökumenn koma niður af Eyjafjallajökli.  Fjórtán ökumenn voru stöðvaðir og rætt við þá.  Allir framvísuðu þeir ökuskírteini sínu og gáfu öndunarpróf, reyndust þeir vera í lagi.   Þeir sem lögreglan ræddi við lýstu yfir ánægju sinni með þetta eftirlit og sögðu þetta þarft verkefni.

Frá B vakt lögreglunnar á Hvolsvelli, með ósk um gleðilega og slysalausa páska.