19 Október 2018 10:40

Níu umferðaróhöpp hafa verið skráð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni.

Í gærkvöld varð aftanákeyrsla í Njarðvík með þeim afleiðingum að ökumaður annarar bifreiðarinnar steig óvart á bensíngjöfina og hafnaði bifreið hans á tveimur kyrrstæðum bifreiðum í bifreiðastæði.

Í tveimur óhöppum til viðbótar lentu strætisvagnar og bifreiðir saman.

Talsvert tjón varð í  óhöppunum en engin alvarleg meiðsl á fólki.

Þá voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og meintan vímuefnaakstur.