8 Nóvember 2020 15:48

Eitt virkt  smit er á Austurlandi og er viðkomandi  í einangrun og engin er í sóttkví. Aðgerðarstjórn bendir á hve fá ný smit hafa greinst undanfarna daga og að mikill meirihluti þeirra sem um er að ræða  voru þegar í sóttkví. Stjórnin væntir þess að það geti orðið okkur öllum hvatning og hvetur fólk til að ferðast inni og úti, hver á sínu svæði og gæta sem fyrr persónubundinna sóttvarna.

Þó enn sé langt í land, þá verður róðurinn léttari með samstilltu átaki allra ræðara, hér eftir sem hingað til.