29 Desember 2020 16:50

Engin greind COVID-19 smit eru á Austurlandi.

Aðgerðastjórn hvetur til þess að ýtrustu aðgæslu sé gætt í aðdraganda áramóta, við meðferð flugelda en ekki síður í samskiptum okkar íbúa á milli vegna sóttvarna. Á það sérstaklega við nú þegar glíman stendur við náttúruhamfarir ofan í farsótt. Munum því fjöldatakmörkin góðu, tveggja metra regluna, handþvottinn og sprittnotkunina. Síðast en ekki síst að ef upp koma veikindi að halda sig heima og hafa samband við heilsugæslu eða síma 1700 vegna sýnatöku.

Bólusetning hófst á Austurlandi í dag. Allir íbúar hjúkrunarheimila verða bólusettir í þessari fyrstu umferð auk nokkurra aldraðra utan heimilanna, allt eftir reglum og skipulagi þar um. Þá eru framlínustarfsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands í forgangshópi. Gert er ráð fyrir að bólusetningu í þessum fyrsta áfanga ljúki á morgun.

Gleðjumst yfir áramótin með okkar nánustu, þökkum það liðna og hlökkum til þess sem framundan er.