13 Nóvember 2020 15:23

Ekkert virkt COVID smit er nú á Austurlandi. Þannig hefur staðan verið frá 9. nóvember sl.

Fyrirhugaðar breytingar á sóttvarnareglum voru kynntar hjá heilbrigðisráðherra í dag og munu þær breytingar taka gildi nk. miðvikudag 18. nóvember. Næstu daga eru því reglurnar óbreyttar. Aðgerðastjórn vill því minna á að við verðum að halda áfram að fara eftir settum reglum, sýna aðgát eins og við höfum gert svo vel hingað til og vera þolinmóð.

Aðgerðastjórn mun nú senda út tilkynningar á þriðjudögum og föstudögum nema eitthvað sérstakt komi upp.

Við höfum til þessa í sameiningu gengið, þrammað, öslað, arkað, róið og siglt – höldum því endilega áfram.