25 Nóvember 2020 15:11

Eitt COVID smit er á Austurlandi.

Aðgerðastjórn ítrekar enn mikilvægi persónubundinna sóttvarna og minnir á að handan við hornið er tími inflúensunnar árlegu. Fyrrnefndar sóttvarnir gagnast líka gegn henni og mörgum öðrum veirupestum.

Í ljósi góðs COVID ástands í fjórðungnum mun aðgerðastjórn taka upp fyrri háttu í logni og senda einungis út tvær tilkynningar á viku, á þriðjudögum og föstudögum. Ef vindur snýst eða hvessir mun tilkynningum fjölgað að nýju og sendar daglega þyki efni til.