2 Febrúar 2021 18:00

Enginn er með virkt COVID smit á Austurlandi.

Bólusetning Austlendinga verður fram haldið þessa vikuna á vegum HSA og nú eru 170 íbúar fullbólusettir. Gangi áætlanir eftir munu í vikulokin auk þess 265 hafa fengið fyrri sprautu af tveimur. Þá verða 435 íbúar ýmist fullbólusettir eða byrjaðir bólusetningu. Það er um 4% íbúa fjórðungsins.

Nú þegar bólusettum fjölgar hægt en örugglega hvetur aðgerðastjórn til áframhaldandi varkárni og tillitssemi ALLRA, bæði bólusettra og óbólusettra. Í því sambandi skal sérstaklega benda á tvennt. Annarsvegar að fullt gagn af bólusetningu fæst ekki fyrr en tíu dögum eftir síðari sprautuna af tveimur. Hinsvegar að enn er ekki vitað hvort og í hve miklum mæli bólusettir geta borið smit þó þeir séu sjálfir varðir. Við þurfum því öll sem fyrr að þreyja þorrann og fylgja þeim meginreglum sem við höfum gert fram að þessu, hvort heldur bólusett eða ekki. Höldum áfram að njóta og nýta það góða ástand sem við búum við og tökum engar óþarfa áhættur í leiðinni.

Gerum þetta saman.