27 Mars 2021 19:43

Fimm eru nú í einangrun á Austurlandi vegna landamærasmits, fjórir er komu í tuttugu og fimm manna hópi með Norrænu á þriðjudag og einn sem er nýkominn til landsins gegnum Keflavíkurflugvöll. Fimm greindust upphaflega smitaðir við komu Norrænu á þriðjudag. Einn þeirra reyndist með gamalt smit og því ekki lengur í einangrun og ekki inni í COVID tölum fjórðungsins. Einn greindist í gær í sýnatöku fimm dögum eftir komu til landsins með flugi. Hann var eins og reglur kveða á um í sóttkví og því ekki ástæða til að óttast dreifingu smits frá viðkomandi út í samfélagið. Smitin eru því enn fimm, allt landamærasmit.

Aðrir þeirra er komu með tuttugu og fimm manna hópi Norrænu á þriðjudag eru í sóttkví þar til þeir fara í seinni sýnatöku.

Sóttvarnayfirvöld mátu í dag ástandið á landinu stöðugt og jafnvel batnandi.  Með markvissum persónubundnum vörnum og vonandi fækkun smita í kjölfarið styttum við tímann þar til hægt verður að rýmka sóttvarnareglur aftur.

Með vonina að vopni og stóran skammt af gleði förum við létt í gegnum þetta saman.