30 Mars 2021 18:12

Sextán eru nú skráðir í einangrun á Austurlandi vegna COVID smits. Í öllum tilvikum er um smit á landamærum að ræða. Tíu þessara skráninga tengjast súrálsskipi er liggur við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði, en þau voru áður skráð sem „óstaðsett“ á covid.is. Þá tengjast fimm þeirra Norrænu frá komu hennar í síðustu viku og eitt Keflavíkurflugvelli. Að mati aðgerðastjórnar er ekki ástæða til að ætla dreifingu smita vegna þessa innan fjórðungsins.

Skipverji súralsskipsins sem fluttur var á Landspítala 28. mars sl. er þar enn og líðan hans stöðug. Vel er fylgst með ástandi allra um borð af hálfu Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Enginn telst alvarlega veikur. Þeir skipverjar er ekki greindust með COVID við komu skipsins 20. mars síðastliðinn voru skimaðir í gær þriðja sinnið. Allir voru þeir neikvæðir líkt og við fyrri skimanir. Varnir sem upp hafa verið settar um borð milli smitaðra og ósmitaðra halda því enn sem komið er og munu vonandi gera þar til skipverjar geta haldið til hafs á ný.

Bólusetningarverkefnið gengur vel. Samkvæmt tölulegum upplýsingum af covid.is eru 6,53% íbúa Austurlands full bólusettir og bólusetning hafin hjá 5,95% íbúa. Það eru rúm 12% íbúa fjórðungsins. Bólusetningum í þessari viku er lokið og í vikunni eftir páska er gert ráð fyrir bólusetningu rúmlega 250 manns.