16 Apríl 2021 14:14

Enginn er nú með virkt COVID smit á Austurlandi.

Aðgerðastjórn hvetur íbúa sem fyrr að fara varlega þrátt fyrir afléttingar á takmörkunum, að fylgja þeim reglum sem til staðar eru og gæta vel að persónubundnum sóttvörnum. Hún áréttar ekki síst mikilvægi þessa þegar farið er á milli landsvæða þar sem mannsöfnuður er nokkur, svo sem á íþróttakappleikjum, skíðamótum og svo framvegis.

Gætum að okkur og komumst þannig frísk og heil gegnum þennan skafl og inn í sumarið.