9 Ágúst 2021 15:59

NIÐURSTÖÐUR SÝNATÖKU VEGNA SMITS Á DYNGJU

Nú eru niðurstöður sýnatöku sem fram fór á Dyngju komnar og og voru öll sýnin neikvæð.  Því gilda ekki fyrri tilmæli um að vinsamlegast koma ekki í heimsókn en nú sem fyrr er ástæða til að fara að öllu með gát og passa vel allar smitvarnir.  Enn eru nokkrir íbúar í sóttkví en sýni verða tekin úr þeim á morgun og niðurstöður þeirra sýnatöku að vænta á miðvikudag.  Séu þau sýni neikvæð munu viðkomandi losna úr sóttkví.  Við hjá HSA þökkum kærlega fyrir þann skilning sem þið hafið sýnt okkur við vinnslu þessa verkefnis.

Tilkynning á vef HSA:

https://www.hsa.is/um-hsa/frettir/109-nidhurstoedhur-synatoeku-vegna-smits-a-dyngju