17 September 2021 16:37

Í dag voru tekin tæplega 140 sýni á Reyðarfirði, þar á meðal voru skimuð börn í 4-10. bekk í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Niðurstöðu úr sýnatöku er að vænta síðar í kvöld og verður önnur tilkynning send út þegar þær niðurstöður liggja fyrir. Smitrakning er í fullum gangi og vonast er til sýnataka dagsins gefi okkur betri mynd af útbreiðslu smita. Aðgerðastjórn Austurlands fundar í fyrramálið og fer yfir stöðu mála. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um skóla- eða leikskólastarf á mánudaginn. Foreldrar verða upplýstir um leið og niðurstöður liggja fyrir.