10 Nóvember 2021 13:44

Á Vopnafirði bættist við eitt nýtt smit eftir sýnatöku gærdagsins svo nú eru alls 9 í einangrun á Vopnafirði. Töluverður fjöldi er í sóttkví og smitgát. Aftur verður boðið upp á sýnatöku á Vopnafirði í dag á milli 17-18 og eru íbúar hvattir til að mæta í skimun.

Í samráði við aðgerðastjórn Austurlands var ákveðið að hafa grunnskóla og leikskóla lokaða á morgun á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku dagsins. Ekki hafa bæst við nein ný smit á Egilsstöðum en opið var í sýnatöku í hádeginu og niðurstöður ættu að liggja fyrir í kvöld.

Önnur tilkynning verður send út um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.