18 Nóvember 2021 15:54

Um áttatíu manns fóru í sýnatöku á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík í fyrradag vegna smita er þar hafa greinst. Þá voru sýnatökur á Egilsstöðum einnig. Niðurstöður lágu fyrir í morgun og voru allar neikvæðar.

Alls eru 4 smit staðfest hjá grunnskólabörnum á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði. Börn í 1-6 bekk skólans sem eru í sóttkví fara í seinni sýnatöku í dag og eru þá laus úr sóttkví þegar neikvæð niðurstaða liggur fyrir. Líklega verður það ekki fyrr en seint í kvöld eða fyrramálið. Í ljósi þess hefur aðgerðastjórn í samráði við skólastjórnendur ákveðið að hafa ekki skóla í fyrramálið fyrir 1-6. bekk á meðan niðurstöðu er beðið. Í 7-10. bekk verður fjarkennsla.

Leikskólinn verður með hefðbundnu sniði í fyrramálið en þeim tilmælum beint til foreldra að senda ekki börn í leikskólann sem eiga eldra systkini sem enn er í sóttkví. Á mánudaginn verður að öllu óbreyttu opið í bæði grunn- og leikskólum á Stöðvarfirði og Beiðdalsvík.

Aðgerðastjórn áréttar mikilvægi þess að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima sem eru með einkenni er bent geta til Covid-19 og fara í sýnatöku. Þannig hjálpumst við að við að takmarka útbreiðslu veirunnar.