7 Desember 2021 16:11

Ríflega 180 nemendur og kennarar grunnskólans á Eskifirði fóru í sýnatöku í dag vegna smits er greindist í skólanum í gær. Gera má ráð fyrir að niðurstöður og úrvinnsla þeirra liggi fyrir í fyrramálið. Skólinn verður því lokaður á morgun að öllu óbreyttu. Aðgerðastjórn og yfirvöld skólamála í Fjarðabyggð munu í fyrramálið senda upplýsingar um niðurstöður og ef eitthvað breytist varðandi lokun skólans verður það kynnt fyrir hádegi á morgun.

Vegna gruns um smit í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði var honum lokað um hádegi í dag. Sýnatökur fóru að hluta fram í dag og er niðurstöðu beðið, verða væntanlegar seint í kvöld. Foreldrar og forráðamenn barna á leikskólanum eru hvattir til að fara með börn sín í sýnatöku milli klukkan 09:00 og 10:30 í fyrramálið á Heilsugæsluna á Reyðarfirði, við bílskúrinn. Breytist forsendur og óhætt þykir að opna skólann að nýju mun það gert um hádegisbil á morgun. Tilkynning mun send í fyrramálið um niðurstöðu hvað lokun varðar.

Þá er og grunur um smit í grunnskóla Reyðarfjarðar en það talið einangrað. Nemendur í fjórða bekk skólans og hluti af nemendum í þriðja bekk er heima vegna þessa og bíða niðurstöðu sýnatöku. Hún ætti að liggja fyrir á morgun.

Vegna þeirra smita sem upp hafa komið á Austurlandi nýverið eru íbúar sem fyrr hvattir til að gæta ítrustu varkárni hvar sem þeir eru, huga að fjarlægð sín á milli og muna reglulegan handþvott og sprittnotkun.

Í gegnum þennan skafl komumst við með samstilltu átaki, nú sem fyrr.