10 Desember 2021 15:01

Aðeins eitt nýtt smit hefur greinst á Austurlandi úr sýnatöku gærdagsins þar sem 531 sýni var tekið. Enn er þó verið að ljúka yfirferð á niðurstöðum en ekki gert ráð fyrir að þær breytist.

Vert er að þakka íbúum fjórðungsins fyrir góða þátttöku í skimunum síðustu daga. Ljóst er að niðurstöður gefa tilefni til bjartsýni.

Áfram þurfum við að vera vakandi fyrir hugsanlegum einkennum og fara í PCR sýnatöku ef þeirra verður vart.

Vegna óvissu um flugveður á laugardaginn er ekki talið rétt að setja upp aukaopnun í sýnatöku þann dag. Opið verður í sýnatökur á sunnudaginn, á Reyðarfirði frá 9-10:30 og á Egilsstöðum frá 12-13:30. Hægt er að bóka sýnatöku á heilsuvera.is.

Skólahald í grunnskólanum á Eskifirði, grunnskólanum á Reyðarfirði og í leikskólanum Lyngholti hefst að nýju á mánudagsmorgun. Áréttað skal að bæði börn og starfsmenn skólanna sem eru í sóttkví þurfa að ljúka henni, mæta í síðari sýnatöku og bíða niðurstöðu áður en þau mæta í skólann.