1 Janúar 2022 18:56

Alls eru 60 í einangrun á Austurlandi og 101 í sóttkví. Tölurnar á covid.is verða ekki uppfærðar í dag svo þessar tölur eru einungis bráðabirgðatölur og gætu breyst eftir helgi. Ljóst er þó að smitum fer fjölgandi og eru dreifð um allt Austurland.

Leikskólinn á Vopnafirði opnar kl. 12 á mánudaginn, þ.e. fyrir þau börn og starfsmenn sem eru hvorki í einangrun né sóttkví.

Á morgun, 2. janúar, er opið í sýnatöku á Reyðarfirði, Egilsstöðum og Vopnafirði og eru allir hvattir til að nýta sér þær sýnatökur ef einhver einkenni gera vart við sig. Á Reyðarfirði er opið frá kl. 9-10, á Egilsstöðum er opið frá kl. 11-12 og á Vopnafirði er opið frá kl. 13-13:30.

Að gefnu tilefni er gott að minnast á að þeir sem eru með einhver einkenni, svo sem kvef, hálssærindi, hita, hósta eða meltingarfæraeinkenni ættu að forðast umgengni við annað fólk og sleppa heimsóknum. Þá skiptir miklu máli að þeir sem eru með einkenni haldi sig heima og bíði eftir niðurstöðum úr sýnatöku.

Aðgerðastjórn þakkar íbúum Austurlands dýrmæta samvinnu allt nýliðið ár og óskar þeim og landsmönnum öllum farsældar á nýja árinu.