13 Janúar 2022 10:42

Enn er mikill fjöldi smita að greinast á Austurlandi. Smit sem greinst hafa síðustu tvo sólarhringa eru ekki síst í Fjarðabyggð og teygja sig víða inn í skólastarf þar. Smit eru bæði meðal nemenda og kennara.

Aðgerðastjórn fundaði í morgun og á eftir er fyrirhugaður fundur með skólastjórnendum á Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupstað til að leggja mat á stöðuna. Mögulegt er að grípa þurfi til aðgerða innan skólanna til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu smita.

Aðgerðastjórn mun senda út aðra tilkynningu í dag þegar frekari ákvarðanir hafa verið teknar.