22 Júní 2020 16:08

Von er á Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið með um 460 farþega innanborðs. Af þeim þurfa um 300 í sýnatöku sem framkvæmd verður um borð.

Allir þeir sem þurfa í sýnatöku fá leiðbeiningar um það hvernig skuli bera sig að hér á landi meðan niðurstöðu er beðið. Í ljósi þess þó hversu margir koma til fjórðungsins á morgun og þess að smit hafa nýverið komið upp hér innanlands, þykir aðgerðastjórn rétt að árétta að við íbúar gætum að eigin smitvörnum, hugum að tveggja metra reglunni og handþvotti sérstaklega. Þá er sprittnotkun á snertifleti mikilvæg sem fyrr, svo sem hurðarhúna og borð í verslunum og á veitingastöðum.

Slíkar varúðarráðstafanir eru einnig mikilvægar á tjaldsvæðum þar sem tjaldbúar og tjaldverðir gæti og að leiðbeinandi fjögurra metra fjarlægðarreglu milli tjaldstæða.

Verum varkár áfram og gætum þannig að eigin öryggi og annarra.