26 September 2020 15:15

Einungis eitt staðfest smit er á Austurlandi, landamærasmit sem kynnt var af hálfu aðgerðastjórnar í gær. Ekkert innanlandssmit er í fjórðungnum sem er jákvætt.

Sterkasta vörnin gegn smiti er að hver og einn haldi sínum persónulegu sóttvörnum í lagi, s.s. með þvi að virða fjarlægðarmörk, passa upp á handþvott og sprittnotkun og halda sig heima hafi maður einkenni og leita þá álits heilsugæslunnar.

Höldum áfram að gera þetta saman.