1 Október 2020 17:21

Staðan á Austurlandi er óbreytt með tilliti til smita, tveir skráðir í einangrun, annar þeirra búsettur á svæðinu og hinn ekki.

Niðurstaða sýnatöku vegna togara er kom inn til Seyðisfjarðar í gærkvöldi með fimm skipverja veika liggur nú fyrir. Tekið var sýni úr öllum fimm og enginn þeirra var greindur með smit.