25 Október 2020 14:34

Enginn er með virkt COVID smit á Austurlandi.

Aðgerðastjórn hvetur alla þá sem hafa farið út fyrir fjórðunginn vegna vetrarfría í skólum eða af öðrum ástæðum að fylgjast vel með heilsufari og huga vel að einkennum veikinda eftir heimkomu. Gæta vel persónulegra sóttvarna og að halda sig heima ef einhver einkenni gera vart við sig eða minnsti grunur leikur á smiti. Hafa þá samband við heilsugæsluna eða síma 1700.  Með árvekni að leiðarljósi drögum við úr líkum á því að smit berist inn í skóla, vinnustaði og meðal okkar nánustu.

Gerum þetta saman áfram.