27 September 2020 14:12

Nú eru tvö virk smit meðal fólks með lögheimili á Austurlandi, þar sem eitt smit greindist í gær. Fyrir var eitt landamærasmit í fjórðungnum, en sá sem greindist í gær býr og heldur sína einangrun í öðrum landshluta og smitrakning gekk vel.

Aðgerðastjórn á Austurlandi vekur athygli á áhyggjum almannavarnadeildar RLS um ástand COVID mála á höfuðborgarsvæðinu þar sem bylgja smita hefur risið. Mikils er því um vert að þeir sem þurfa þangað hugi sérstaklega að einstaklingsbundnum smitvörnum og ekki síður að varkárni sé gætt þegar komið er þaðan.

Gætum að eigin smitvörnum og höldum áfram að gera þetta saman.