23 Mars 2020 22:03

Almannavarnanefnd Austurlands er kunnugt um að á meðal íbúa á sér stað umræða um það hvort loka skuli Austurland af í sóttvarnaskyni. Af þeim sökum upplýsir nefndin að um þetta atriði hefur hún átt samráðsfund með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni almannavarnadeildar Ríkislögreglustjórans. Á fundinum var farið vandlega yfir kosti og galla slíkrar lokunar. Að vel athuguðu máli er það mat sóttvarnarlæknis að lokun þjóni ekki tilgangi sínum fremur en að loka landinu öllu. Það muni fremur fresta vandanum en leysa hann enda óvíst þá hversu lengi landshlutinn yrði að vera lokaður.

Áréttað er að enn hefur ekki orðið vart smits á Austurlandi þó líklegt megi telja að til þess komi. Þau ráð sem gripið hefur verið til þykja því hafa dugað vel og íbúar sem fyrr hvattir til að fylgja leiðbeiningum sóttvarnarlæknis í hvívetna.