15 Maí 2010 12:00

Þar sem spáð er áframhaldandi norð- og norðaustlægum áttum um helgina eru líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Eyjafjallajökli.

Umtalsvert öskufall hefur verið í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn og öskufjúk er nú í bænum.  Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja bendir fólki á að unnt er að nálgast rykgrímur á lögreglustöðinni.  Þá er unnt að nálgast grímur á Heilsugæslunni á opnunartíma.

Búfjáreigendum er bent á að brynna búfénaði vel í þessu ástandi og þeir sem eiga þess kost að gefa fénaði sínum á húsi geri það fremur en að beita á haga.   Almannavarnarnefndin bendir fólki á að afla sér upplýsinga um áhrif öskufalls á fólk og búfénað á heimasíðu landlæknis og matvælastofnunar.  Fólki með öndunarfærasjúkdóma er ráðlagt að halda sig innandyra á meðan ösku gætir í andrúmslofti og í miklu öskufalli eða fjúki er það besta ráðið fyrir alla að vera ekki utandyra að óþörfu til að forðast óþægindi.  Bílstjórum er bent á að aka rólega um bæinn til þess að þyrla ekki upp ösku að óþörfu.

Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja